skólar.is - Ársól
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

Þá er þessi skemmtilega vika á enda. Mikið búið að vera að gera hjá okkur í vikunni. Elma Björg og Lísa eru byrjaðar hjá okkur og hefur gengið mjög vel. Það hafa verið nokkuð um veikindi hjá okkur og því hafa einhverjir dagar verið mjög rólegir og höfum við því getað dúllað okkur málað, farið í gönguferðir og fleira.

Í næstu viku byrja hjá okkur í aðlögun þrír prinsar þeir Úlfar Jökul, Gabríel Ísak og Jóel Fannar og bjóðum við þá velkomna. 

Á mánudaginn fórum við í gönguferð niður í Laugardal til að týna laufblöð og ætlum við að nota þau til að gera eitthvað skemmtilegt t.d myndir til að minna okkur á haustð.

 

Svo á fimmtudaginn var blár dagur hjá okkur í leikskólanum og mættu bæði börn og starfsfólk í bláum fötum. Við gerðum margt skemmtilegt þann daginn börnin fengu að mála myndir og notuð einungis bláa og hvíta málingu. Í söngstund sungum við um hafið og bláa litin. Þetta var æðislega skemmtilegur dagur og gaman að sjá hvað mörg börn mættu í einhverju bláu.

 

Það var nóg að gera þessa viku því í dag er svo Alþjóðlegi tungumáladagurinn og fórum við í sameiginlega söngstund með Kisustofu inn í sal og sungum við á hinum ýmsum tungumálum. Við erum búin að vera að æfa okkur alla vikuna að syngja á spænsku, frönsku og dönsku og hefur það gengið mjög vel. Er mjög gaman að sjá hvað börnin eru dugleg að fylgjast með okkur fullorðnar fólkinu þegar að við erum að syngja fyrir þau á öðru tungumáli.

Svo að lokum vil ég bara svona minna ykkur kæru foreldrar að koma með 3-5 fjölskyldumyndir sem að við getum sett á fjölskylduveggin, við erum komin með myndir frá nokkrum börnum en okkur vantar ennþá fullt af myndum frá fullt af börnum.