skólar.is - Ársól
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

Á bangsastofu eru 22 kraftmikil og skemmtileg börn á aldrinum 9 mánaða - 3 ára.

Börnin fara tvisvar í viku til Krisztinar inn í sal þar leggur hún mestu áherslur á jafnvægi og samhreyfingar og er ávallt mikið fjör bæði hjá henni og börnunum.

Hér má sjá hópana og tíman sem að börnin fara í hreyfingu

Hópastarf fer að mestu fram á morgnana og er börnunum skipt niður í litla hópa eftir aldri. Í hópastarfinu gerum við margt skemmtilegt þar á meðal förum við í könnunarleikinn, skoðum bækur, púslum, kubbum og margt fleira. Í hádegismat og síðdegishressingunni sitja börnin með sýnum hópstjórna.

Hér má sjá hópana og hópstjórana

Í bangsakoti höfum við okkar litlu listasmiðju og þar fá börnin að njóta sín og er lögð áhersla á að að börnin tjái sig frjálst og sköpunargleðin fái að njóta sín.

Á hverjum degi förum við í söngstund fyrir mat og einu sinni í mánuði veljum við lag sem að við syngjum og notum tákn með tali.

Við förum út einu sinni til tvisvar á dag og er útivera mikilvægur í leikskólauppeldi. Í útiveru leika börnin sér mest frjáls og er boðið upp á hefbundið leikefni. Einnig förum við stundum með börnin í gönguferðir í nánasta umhverfi skólans. Á sumrin erum við oftar úti.