Í skóginum stóð kofi einn
Í skóginum stóð kofi einn
sat við gluggann jólasveinn
þá kom lítið héraskinn
sem vildi komast inn.
Jólasveinn ég treysti á þig
veiðimaður skýtur mig.
Komdu litla héraskinn
því ég er vinur þinn.
En veiðimaður kofann fann
jólasveininn spurði hann
hefur þú séð héraskinn
hlaupa um hagann þinn.
Hér er ekkert héraskott
Hafa skaltu þig á brott.
Veiðimaður burtu gekk
Og engan héra fékk.
Jólasveinar ganga um gólf
Jólasveinar ganga um gólf
með gildan staf í hendi
móðir þeirra sópar gólf
og flengir þá með vendi.
Upp á stól stendur mín kanna
níu nóttum fyrir jól
þá kem ég til manna.
Upp á stól stendur mín kanna
níu nóttum fyrir jól
þá kem ég til manna.
Gekk ég yfir sjó og land
Gekk ég yfir sjó og land
og hitti þar einn gamlan mann
sagði svo og spurði svo
hvar áttu heima??
Ég á heima á Kapplandi,
Klapplandi, Klapplandi.
Ég á heima á Klapplandi,
Klapplandinu góða.
--Hopplandi
--Grátlandi
--Hlælandi
-- Íslandi
Adam átti syni sjö
Adam átti syni sjö,
sjö syni átti Adam.
Adam elskaði alla þá
og allir elskuðu Adam.
Hann sáði, hann sáði
hann klappaði saman lófunum,
stappaði niður fótunum,
ruggaði sér í lendunum og
snéri sér í hring.