Lokað fyrir umsóknir vegna úthlutunar leikskólaplássa haustið 2010
12.apríl 2010
Vegna úthlutunar á leikskóplássum í Ársól fyrir haustið 2010 er miðað við að dagsetning umsóknar berist eigi síðar en 1. apríl 2010. Nú þegar eru yfir 150 börn á biðlistanum sem biðja um pláss í haust en að öllum líkindum getum við einungis boðið um 40 börnum pláss. Því miður getum við ekki tekið á móti fleiri umsóknum fyrir leikskólapláss til úthlutunar haustið 2010.
Til baka