skólar.is - Ársól
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

Deildarstjóri óskast á Kisustofu

6.maí 2010

Deildarstjórastaða er laus á Kisustofu frá og með 9. ágúst 2010. Í leikskólanum er unnið eftir heilsustefnunni með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun. Unnið er með jákvæð og gefandi samskipti og er góður andi ríkjandi í skólanum.

Hafir þú áhuga á að vinna í lifandi og metnaðarfullu starfsumhverfi með skemmtilegu fólki hafðu þá samband. Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um. Nánari upplýsingar veita Berglind Grétarsdóttir leikskólastjóri og hægt er að sækja um rafrænt inn á heimasíðu skólans.

Til baka