Sumarfrí
2.júlí 2010
Það fer senn að líða að sumarlokun leikskólans, 9. júlí. Við vonum að allir hafi það sem allra best í sumarfríinu og komi kátir til baka í ágúst. Mörg börn hætta í Ársól við sumarlokun og við viljum þakka foreldrum og börnum fyrir yndislegt og mjög svo gefandi samstarf í vetur. Það hefur verið forréttindi að fá að kynnast öllum þessum yndislegu börnum og foreldrum þeirra. Vonandi fáum við að fylgjast með ykkur í framtíðinni. Bestu sumarkveðjur, skólastjóri og kennarar í Ársól.
Til baka