Markmið heilsustefnunnar er fyrst og fremst að stuðla að heilsueflingu í leikskólasamfélaginu. Í dag eru 11 heilsuleikskólar víðsvegar um landið sem hver um sig hefur sín einkenni og áherslur, auk þeirra þriggja þátta sem einkenna heilsustefnuna. Þessir þættir eru hreyfing, listsköpun og næring.
Í heilsustefnunni er unnið markvisst með hreyfingu og listsköpun á þann hátt að öll börn fá skipulagðar stundir með sérhæfðum kennurum 1-2 sinnum í viku. Þessar stundir eru skipulagðar fyrirfram og tengjast bæði þeim þáttum sem prófaðir eru í Heilsubók barnsins og áherslum leikskóla. Í næringu er lögð áhersla á hollt heimilisfæði þar sem markmiðið er að auka grænmetis og ávaxtaneyslu og að nota fitu, salt og sykur í hófi. Við samsetningu matseðla er tekið mið af markmiðum Lýðheilsustöðvar varðandi næringu barna.