skólar.is - Ársól
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

Við í Ársól vinnum eftir heilsustefnunni en getum ekki kallað okkur Heilsuleikskóla fyrr en við uppfyllum þau viðmið sem samtök Heilsuleikskóla setja fyrir ungbarnaleikskóla. Ársól er það sem samtökin kalla leikskóli á heilsubraut. Enn hafa engin viðmið verið sett fyrir yngstu börnin en samtökin eru að vinna í því. Við komum að þeirri vinnu þar sem við erum eini ungbarnaleikskólinn á Íslandi sem er að vinna eftir heilsustefnunni. Við höfum vissa reynslu og þekkingu sem við getum miðlað til samtaka Heilsuleikskóla.

Markmið heilsustefnunnar er fyrst og fremst að stuðla að heilsueflingu í leikskólasamfélaginu. Í dag eru 11 heilsuleikskólar víðsvegar um landið sem hver um sig hefur sín einkenni og áherslur auk þeirra þriggja þátta sem einkenna heilsustefnuna. Þessir þættir eru næring, hreyfing og listsköpun.

Í næringu er lögð áhersla á hollt heimilisfæði þar sem markmiðið er að auka grænmetis og ávaxtaneyslu og að nota fitu, salt og sykur í hófi. Við samsetningu matseðla er tekið mið af markmiðum Lýðheilsustöðvar varðandi næringu barna. Í heilsustefnunni er unnið markvisst með hreyfingu og listsköpun á þann hátt að öll börn fá skipulagðar stundir með sérhæfðum kennurum. Hér í Ársól er ekki sérhæfður kennari í listsköpun en sú vinna fer fram í hópastarfinu. Við erum með fagstjóra í hreyfingu sem sér um hreyfistundirnar í salnum okkar þar sem börnin fara í þrautabrautir og alls konar leiki.