Í ljósi aðstæðna barna í borginni, þar sem engin börn fædd 2010 komast inn í leikskólana, höfum við tekið þá ákvörðun að taka börn inn eftir kennitölu skólaárið 2011-2012. Fyrir þeirri ákvörðun liggja þau faglegu rök að elstu börnin þurfi mest á skólavist að halda út frá þroskasjónarmiði. Þar af leiðandi komum við einungis börnum fæddum í janúar, febrúar, mars og nokkrum í apríl inn í skólann næsta skólaár. Þetta á einungis við um börn sem eru nú þegar með umsókn í gildi og sóttu um fyrir 9. febrúar sl. Við munum bæta við okkur fjórum börnum í skólann til þess að mæta enn frekar þeim fjölda sem bíður eftir plássi. Plássin eru 48.
Eins og staðan er í borginni er búið að lofa öllum börnum fæddum 2009 plássi á leikskóla. Hins vegar er ólíklegt að það gerist strax að loknu sumarfríi þannig að innritanir og aðlaganir gætu mögulega dregist eitthvað fram á veturinn.
Biðjum ykkur góðfúslega um að sýna aðstæðum okkar skilning.