skólar.is - Ársól
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita
Leikskólinn er uppeldis- og menntastofnun, sem byggist á Lögum um leikskóla og Aðalnámskrá leikskóla, sem gefin er út af Menntamálaráðuneytinu. Leikskólinn er fyrsta skólastig barnsins og er leikurinn hornsteinn leikskólastarfsins og aðal kennsluaðferð leikskólakennarans. Leikskólauppeldi er sérstakt uppeldi sem er góð viðbót við heimilisuppeldi, en kemur aldrei í staðinn fyrir það. Foreldrar eru óumdeilanlega aðal uppalendur barna sinna og bera megin ábyrgð á uppeldi þeirra.
Í Aðalnámskrá leikskóla er lögð áhersla á að efla alhliða þroska barnsins, heilbrigða lífshætti og lífsviðhorf, lífsleikni og sjálfstraust þess.
Helstu námssvið leikskólans eru; hreyfing,  málrækt,  myndsköpun,  tónlist,  náttúran og umhverfið,  menning og samfélag og tölvur.  Námssviðin eru áhersluþættir í leikskólauppeldi og eru samofin undirstöðuþáttum leikskólastarfsins.
Í lögum um leikskóla segir m.a. að búa eigi börnum örugg leikskilyrði og hollt uppeldisumhverfi. Að leikskólinn skuli gefa börnum kost á að taka þátt í leik og starfi og njóta fjölbreyttra uppeldiskosta barnahópsins undir leiðsögn leikskólakennara. Að kappkosta eigi í samvinnu við heimilin að efla alhliða þroska barna í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins og leitast við að hlúa að þeim andlega og líkamlega svo að þau fái notið bernsku sinnar.