skólar.is - Ársól
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

Elinor Goldschmied kynnti könnunarleikinn í bók sinni People under three og hefur þessi aðferð náð miklum vinsældum um allan heim. Þetta er góð aðferð til þess að nota með börnum undir þriggja ára aldri til þess að kynna fyrir þeim ólíkan efnivið og fá þau til þess að nýta ímyndunaraflið og virkja hugann. Leikefnið er allskonar efniviður t.d. skeiðar, pappahólkar, lyklar, borðar, steinar, skeljar, fjaðrir, korkur, lok, tómar dósir, efnisbútar og allt annað sem manni dettur í hug. Börn á þessum aldri hafa yfirleitt ekki nægilegan þroska til þess að geta deilt með öðrum og þess vegna þarf að gæta þess að vera með nokkur eintök af hverjum hlut svo þau festist ekki í því að vernda það sem þau „eiga.“ Börnin þurfa að fá næði til þess að skoða og kanna efniviðinn og þess vegna er æskilegt að leikurinn fari fram með litlum barnahóp. Kennarinn er til staðar og fylgist með án afskipta af leiknum.

Gott er að reikna með c.a. hálftíma til klukkustund í leikinn (eða styttri tíma, allt eftir börnunum) og á þeim tíma eiga börnin að fá tækifæri til þess að ganga frá í rólegheitum. Þá situr kennarinn með pokann og börnin koma með hlutina og setja í pokann hjá kennaranum, þetta er hluti af leiknum hjá þeim og kennir þeim að hjálpast að og að ganga frá eftir sig.