Velkomin í leikskólann
Leikskólinn var formlega opnaður 19.febrúar 2009 og er sjálfstætt starfandi skóli rekinn af Skólum ehf, sem er með þjónustusamning við Reykjavíkurborg.
Hægt er að sækja um pláss á heimasíðunni okkar eða heimasíðu Skóla ehf, www.skolar.is
Ársól er tveggja deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 9 mánaða til 3ja ára. Deildirnar heita Bangsastofa og Kisustofa og eru þær báðar aldursblandaðar. Við erum með hreyfisal þar sem markvissar hreyfistundir fara fram undir leiðsögn fagstjóra. Salurinn er einnig mikið nýttur undir frjálsan leik. Við erum með móttökueldhús en við útbúum sjálf morgunmat og síðdegishressingu.Við fáum hádegismat sendan frá Heilsusleikskólanum Kór sem Skólar ehf reka í Kópavogi.
Við í Ársól vinnum eftir heilsustefnunni en getum ekki kallað okkur Heilsuleikskóla fyrr en við uppfyllum þau viðmið sem Samtök Heilsuleikskóla setja fyrir ungbarnaleikskóla. Ársól er það sem samtökin kalla leikskóli á heilsubraut. Enn hafa engin viðmið verið sett fyrir yngstu börnin er samtökin eru að vinna í því. Við komum að þeirri vinnu þar sem við erum eini ungbarnaleikskólinn á Íslandi sem er að vinna eftir heilsustefnunni. Við höfum vissa reynslu og þekkingu sem við getum miðlað til Samtaka Heilsuleikskóla.