Áætlun fyrir aðlögun (börn sem eru í morgunmat)
Fyrsti dagur:
Barnið kemur kl. 9:00 og er fram yfir hádegismat. Foreldri er með allan tímann, sér um barnið sitt og tekur þátt í öllu starfi í góðri samvinnu við starfsfólk.
Annar dagur:
Barnið kemur klukkan 8:30 og er fram yfir hvíldina. Foreldri er með allan tímann, sér um barnið sitt og tekur þátt í öllu starfi í góðri samvinnu við starfsfólk.
Þriðji dagur:
Barnið kemur á umsömdum vistunartíma og er fram yfir nónhressingu (til kl. 15:00). Foreldri er með allan tímann, sér um barnið sitt og tekur þátt í öllu starfi í góðri samvinnu við starfsfólk.
Fjórði dagur:
Barnið kemur á umsömdum vistunartíma og er allan daginn. Foreldri kveður barnið og það er eitt allan tímann.
Áætlun fyrir aðlögun (börn sem eru ekki í morgunmat)
Fyrsti dagur:
Barnið kemur kl. 9:00 og er fram yfir hádegismat. Foreldri er með allan tímann, sér um barnið sitt og tekur þátt í öllu starfi í góðri samvinnu við starfsfólk.
Annar dagur:
Barnið kemur klukkan 9:00 og er fram yfir hvíldina. Foreldri er með allan tímann, sér um barnið sitt og tekur þátt í öllu starfi í góðri samvinnu við starfsfólk.
Þriðji dagur:
Barnið kemur á umsömdum vistunartíma og er fram yfir nónhressingu (til kl. 15:00). Foreldri er með allan tímann, sér um barnið sitt og tekur þátt í öllu starfi í góðri samvinnu við starfsfólk.
Fjórði dagur:
Barnið kemur á umsömdum vistunartíma og er allan daginn. Foreldri kveður barnið og það er eitt allan tímann.
Þetta er einungis áætlun um það hvernig aðlögunin fer fram. Það er mjög mikilvægt að aðlögunin fari fram eftir þörfum barnsins og því gætu tímasetningar breyst og viðvera foreldra verið meiri en gert er ráð fyrir í áætluninni. Einnig er mikilvægt að hægt sé að ná í foreldri í síma þegar farið er úr húsinu á aðlögunartímabili.