Dvalarsamningur
Allir foreldrar skrifa undir dvalarsamning þegar barnið byrjar leikskólagöngu sína og biðjum við foreldra um að kynna sér ákvæði hans vel. Í honum er m.a. að finna upplýsingar um dvalartíma barnsins. Við viljum biðja foreldra um að fara ekki fram yfir þann tíma sem samið hefur verið um. Vinnutími starfsmanna er skipulagður með tilliti til dvalarsamninganna.
Flutningur á milli leikskóla
Þegar börn komast inn í Ársól detta þau út af biðlista hjá Reykjavíkurborg. Mikilvægt er að sækja um flutning sem fyrst svo þau séu áfram á lista hjá borginni. Leikskólastjóri er með umsóknareyðublað fyrir flutninga en foreldrar þurfa sjálfir að sjá um að fara með umsóknina niður á Leikskólasvið við Fríkirkjuveg 1.
Að koma og fara
Þegar barnið kemur í leikskólann á að fylgja því inn á sína leikstofu og afhenda starfsmanni og þegar barnið er sótt er mikilvægt að láta starfsmenn vita. Mjög mikilvægt er að foreldrar kveðji barnið. Upplýsingatöflur í fataklefum leikskólans eru ætlaðar til að koma upplýsingum á framfæri við foreldra/forráðamenn. Fylgist vel með upplýsingatöflunni.
Veikindi og fjarvistir
Vinsamlegast látið okkur vita ef barnið kemur ekki í leikskólann vegna veikinda eða af öðrum ástæðum. Best er að barnið hafi náð fullum bata eftir veikindi svo þau geti tekið fullan þátt í starfsemi leikskólans. Við tökum ekki á móti börnum sem þurfa að vera inni vegna þess að þau eru alveg að verða veik. Börn eru smitberar á þeim tíma og geta því smitað önnur börn. Læknar hafa staðfest að börn verða ekki veik af því að vera úti í fersku lofti og að börnum með kvef verður ekki meint af því.
Lyfjagjafir
Lyf eru ekki gefin í leikskólanum nema ef um er að ræða astma- ofnæmis- eða ofvirknilyf og þá eftir skriflegum fyrirmælum frá lækni. Fúkkalyf sem börn taka í stuttan tíma á ekki að þurfa að gefa í leikskólanum. Að sögn lækna er nóg að gefa slík lyf með mjólk að morgni, þegar komið er heim og fyrir svefn. Reglur þessar eru settar til að stuðla að öryggi barna í leikskóla. Samkvæmt þessu megum við ekki gefa börnum önnur lyf en fyrr greinir og biðjum við foreldra að virða það.
Óhöpp og slys
Börnin eru tryggð í leikskólanum. Einn starfsmanna er öryggisfulltrúi leikskólans, sem hefur yfirumsjón með öryggismálum barnanna. Ef slys eða óhöpp verða eru þau skráð í slysaskýrslur, sem eru síðan notaðar til að athuga hvort slysagildrur eru í leikskólanum eða á leiksvæðinu. Ef barn slasast er haft samband við foreldra og þau sjá um að fara með barn til læknis ef þörf er á. Ef um alvarlegt slys er að ræða er alltaf hringt á sjúkrabíl og svo haft samband við foreldra.
Börn að sækja börn
Börnum undir 12 ára aldri er ekki heimilt að sækja börn í leikskólann. Biðjum við foreldra um að virða þessa reglu. Einnig biðjum við ykkur um að láta vita ef einhver annar en foreldri sækir barnið í leikskólann.
Sumarlokun
Öll börnin taka 4 vikur samfleytt í sumarfrí. Leikskólinn er lokaður í 4 vikur og lokunartími Ársólar árið 2010 er frá 12. júlí til 9. ágúst.
Foreldrasamstarf
Gott samstarf foreldra og leikskóla er forsenda fyrir góðri líðan barnsins í leikskólanum. Samvinna foreldra og leikskóla þarf að byggjast á gagnkvæmri virðingu og opnum samskiptum. Foreldrum er ávallt velkomið að dvelja í leikskólanum og taka þátt í starfinu. Foreldraviðtöl eru tvisvar á ári. Fyrsta viðtal er ca. þremur mánuðum eftir að barn byrjar í leikskólanum og þá er farið yfir hvernig ykkur og okkur finnst ganga í skólanum. Seinna viðtalið er á vorönn og þá er farið í þroskaþætti barnsins. Það er sjálfsagt að biðja um viðtal hvenær sem er og þá er best að hafa samband við deildarstjóra til að finna tíma fyrir viðtalið.
Samkvæmt leikskólalögum á að vera foreldraráð í hverjum leikskóla og í foreldráði sitja að lágmarki þrír foreldrar ásamt leikskólastjóra. Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir til leikskóla um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða starfsemi leikskólans. Þá skal ráðið fylgjast með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum. Foreldraráð hefur umsagnarrétt um allar meiri háttar breytingar á leikskólastarfi. Skólaárið 2009-2010 sitja fjórir foreldrar í foreldraráði ásamt leikskólastjóra.
Leikföng að heiman
Ekki er æskilegt að börnin komi með leikföng að heiman. Það er þó sjálfsagt að þau komi með bangsa eða tuskudýr sem veitir þeim öryggi í aðlögunarferlinu. Einnig má koma með geisladiska eða bækur að heiman sem öll börnin geta notið góðs af. Við getum þó ekki tekið ábyrgð á því ef þessir hlutir skemmast eða týnast hjá okkur.
Afmæli barnanna
Afmælisdagar barnanna eru stórir dagar í lífi þeirra og er að sjálfsögðu haldið upp á hann í leikskólanum. Barnið fær kórónu og sunginn er afmælissöngurinn. Við sjáum um að gera daginn sérstakan fyrir barnið með ýmsum hætti en ekki er boðið upp á að koma með veitingar í leikskólann.
Skipulags– og námskeiðsdagar
Starfsdagar eru 5 á ári. Þá notar starfsfólk til að skipuleggja, undirbúa og endurmeta starf sitt. Leikskólinn er lokaður á þessum dögum og eru þeir auglýstir með a.m.k. 4 vikna fyrirvara.
Klæðnaður / Aukaföt
Mikilvægt er að klæðnaður barnanna sé þægilegur þannig að hann hefti ekki leikgleði þeirra. Klæðið börnin eftir veðri en hafið það ætíð hugfast að börn hreyfa sig mikið við leik úti og geta því svitnað ef þau eru mikið klædd. Nauðsynlegt er að barnið hafi með sér aukafatnað og nauðsynlegt er að merkja fatnaðinn. Í leikskólanum vinnum við með ýmis efni s.s. lím og málningu sem geta farið í föt barnanna þó svo starfsfólk leiti allra leiða til að svo verði ekki. Vinsamlegast takið tillit til þess og klæðið börnin við hæfi. Fötin eru ekki tryggð fyrir þessu.
Hvíld
Öll börnin leggja sig eftir hádegismatinn. Þau sem sofa inni taka með sér teppi, kodda og jafnvel lítinn bangsa til að hafa hjá sér í hvíldinni. Það að koma með sitt eigið teppi veitir þeim öryggi og auðveldar þeim að venjast því að leggja sig í leikskólanum. Gott er að hafa lítið og létt teppi svo öll börnin hafi nægilegt pláss í hvíldinni. Í lok vikunnar eru koddarnir og teppin send heim með börnunum svo hægt sé að þvo þau.
Þau börn sem nota snuð í hvíldinni koma með þau í leikskólann og geyma þau þar.
Bleyjur
Öll börnin fá merkt hillupláss fyrir bleyjur inni á deild og nauðsynlegt er að hafa alltaf nóg af bleyjum til staðar. Þegar það vantar bleyjur er settur miði á hólf barnsins en foreldrar geta einnig fylgst sjálfir með bleyjumálum með því að kíkja í hillurnar inni á deild.
Tæma töskur og hólf
Það eru mörg börn sem nota fataklefann og til þess að allir hafi nægilegt pláss er nauðsynlegt að tæma töskur á mánudögum og setja föt barnsins í hólfið. Hvert barn á sitt box undir aukaföt og sinn snaga fyrir útifötin og ætti því að vera óþarfi að geyma töskurnar í leikskólanum.
Á föstudögum eru útiföt tekin heim þannig að engin föt séu á snögunum eða í bláu körfunum. Aukaföt mega vera í leikskólanum, en vinsamlegast yfirfarið boxin reglulega.
Merkja eigur barnanna
Mikilvægt er að merkja allar eigur barnanna, bæði skó, föt og snuð til þess að koma í veg fyrir að eigurnar fari í röng hólf og rétt snuð rati í rétta munna. Það er hægt að panta merkingar á fatnað og skó á www.rogn.is, www.merkt.is og fyrir snuð á www.navnesutten.dk og www.mambaby.com
Vagnar
Það er í boði að geyma vagnana í leikskólanum á virkum dögum en það þarf að taka alla vagna heim um helgar svo hægt sé að þrífa vel hjá okkur. Þeir vagnar sem eru skildir eftir í lok vikunnar verða hafðir úti í vagnaskýlinu og eru ekki á ábyrgð leikskólans. Gott er að hafa vagnana merkta.
Það sem þarf að vera til staðar í leikskólanum
3 samfellur
2 sokkabuxur
Langermabolur
Síðbuxur
Þunn húfa
Föt til að sofa í
Inniskór
Snuð
Regnföt
Kuldagalli
Tvenn pör af vettlingum
Ullarsokkar
Þykk húfa
Skór eða stígvél
Sokkar